Naumt tap 3. flokks Tindastóls/Hvatar í síðasta leik sumarsins
Stelpurnar í 3. flokki Tindastóls/Hvatar léku sinn síðasta leik í Íslandsótinu á Sauðárkróksvelli í dag gegn RKV af Suðurnesjunum. Aðstæður voru ágætar til knattspyrnuiðkunar en hefði mátt vera hlýrra. Norðanstelpum beið erfiður leikur þar sem þær sunnlensku hafa einungis tapað einum leik í sumar en voru ekki á því að gefa neitt til gestanna. Strax á fyrstu mínútum leiksins skoraði Tindastóll/Hvöt sem var betri aðili leiksins allan fyrri hálfleik, sköpuðu sér mörg færi og leiddu í hálfleik 2-1.
Í seinni hálfleik komust sunnanstúlkur betur inn í leikinn og náðu að nýta sín færi til fullnustu. Náðu þær að jafna og síðar að komast yfir 3-2 en Tindastóll/Hvöt jöfnuðu þegar skammt var til leiksloka. Alveg undir lokin átti RKV hornspyrnu en því miður fór boltinn af heimamanni og í eigið mark og staðan orðin 4-3 fyrir RKV en það urðu lokatölur leiksins.
Fyrir leikinn sátu Tindastóll/Hvöt í 4. sæti B deildar með 21 stig eftir sjö unna leiki en alls eru 13 lið í riðlinum. Skýrslur af leikjum dagsins voru ekki komnar á vef KSÍ þegar fréttin var skrifuð svo ekki er ljóst enn í hvaða sæti þær endanlega hljóta en ljóst er að gengi liðsins hefur verið mjög gott í sumar og framtíð kvennaknattspyrnunnar á svæðinu björt.
Stöðuna er hægt að sjá HÉR
.