Nemar langt að komnir

Fyrir nokkru voru nemar frá Landgræðsluskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna. Slík heimsókn er árleg og eru nemarnir jafnan frá fátækum löndum í Afríku og Asíu, þar sem landhnignun og landeyðing eru vandmál.

Að þessu sinni komu tíu nema, fimm karlar og fimm konur. Voru þau frá Kirgistan, Mongólíu, Úganda, Níger, Eþíópíu, Namibíu og Gana. Dvelja þau á Íslandi í sex mánuði og á þeim tíma læra þau m.a. um landhnignun, orsakir hennar og hvernig hægt er að endurheimta landgæði með landgræðsluaðgerðum. Námið saman stendur af námskeiðum, verklegri kennslu og æfingum auk skoðunarferða.

Hópurinn var á ferðalagi um Norðurland vestra þar sem hann fékk m.a. yfirsýn yfir þau vandamál sem Íslendingar þurfa að takast á við og þau verkefni sem unnin eru í landverndarmálum hér á landi.Tilgangur heimsóknarinnar að Hólum var að kynnast starfsemi Hólaskóla og sögu staðarins. Ferðina skipulögðu þær Berglind Orradóttir og Halldóra Traustadóttir, starfsmenn Landgræðsluskólans.

Fleiri fréttir