Nemendur í Varmahlíð blóta þorra

Þorrablót Varmahlíðarskóla er í dag. Þá mæta allir í gamaldags fötum og verða þjóðlegir „ í húð og hár“, eins og segir á vef skólans. Þorralög eru sungin og þorramatur borðaður í hádeginu. Nemendur í 3. og 4. bekk heimsóttu einnig safnið í Glaumbæ í tilefni dagsins.

„Þau ætluðu svo að snæða rammíslenskan súran, þurrkaðan, kæstan saltan og hanginn mat í hádeginu. Alltaf er gaman að fá hresst fólk í heimsókn og ekki voru þau bangin við matinn sem var í vændum,“ segir á fésbókarsíðu safnsins, þaðan sem meðfylgjandi mynd er fengin.

Fleiri fréttir