Nemandi úr Árskóla verður að persónu í bók eftir Ævar

Ævar vísindamaður.
Ævar vísindamaður.

Lestrarátak Ævars vísindamann stóð frá 1. janúar til 1. mars en samkvæmt talningu á innsendum lestrarmiðum voru lesnar 54 þúsund bækur í átakinu. Þetta kom fram þegar dregið var úr lestrarátakspottinum á mánudagsmorgun. Nemendur úr Árskóla Sauðárkróki, Grunnskólanum í Sandgerði, Laugarnesskóla, Hörðuvallaskóla og Hríseyjarskóla voru dregin úr pottinum og þau verða gerð að persónum í bók eftir Ævar sem kemur út í apríl. rúv.is greinir frá. 

Samkvæmt frétt rúv.is máttu allir krakkar í 1.-7. bekk taka þátt í lestrarátakinu og stærsti hluti grunnskóla landsins sendi inn lestrarmiða, auk Gladsaxeskóli í Danmörku, þar sem íslenskir krakkar stunda nám.

Rúmlega 60 þúsund bækur lesnar á fjórum mánuðum í sama átaki í fyrra, sem þýðir að tæpar 115 þúsund bækur hafa nú verið lesnar í lestrarátökum Ævars.

Frétt uppfærð kl. 11:17.

Samkvæmt heimasíðu Árskóla var það Sæþór Pétur Hjaltason í 3. bekk sem var dreginn út og verður gerður að persónu í stórhættulegri ævintýrabók, Bernskubrek Ævars vísindamanns: Vélmennaárásin, sem kemur út í apríl.

Fleiri fréttir