Nesfiskur kaupir Meleyri á Hvammstanga
Nesfiskur ehf. í Garði hefur keypt rækjuverksmiðjuna Meleyri á Hvammstanga en Bergþór Baldvinsson framkvæmdastjóri sagði í samtali við Morgunblaðið að ætlunin sé að gera út 2-3 báta á rækju frá Hvammstanga og fullvinna hana á staðnum.
Samkvæmt frétt Morgunblaðsins sl. laugardag líst heimafólki vel á þessa atburðarrás en unnið er að endurbótum á húsum og vélbúnaði og eru áform um að hefja rekstur í vetur.
Meleyri er með elstu rækjuverksmiðjum á landinu, stofnsett 1972, og hefur verið í nokkuð samfelldum rekstri frá upphafi.