Niðurstöðu að vænta seinna í dag hvort skera þurfi niður hátt í tvö þúsund fjár í Skagafirði

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerði á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun grein fyrir stöðunni sem komin er upp í Skagafirði vegna staðfestrar riðuveiki í Tröllaskagahólfi en hinn 22. október sl. greindist riðuveiki á bænum Stóru- Ökrum 1. Matvælastofnun hefur undanfarna daga kortlagt frekari útbreiðslu veikinnar og niðurstöðu er að vænta seinna í dag hvort skera þurfi niður hátt í tvö þúsund fjár á Grænumýri, Syðri-Hofdölum og Hofi í Skagafirði vegna veikinnar.

„Þessar fréttir eru mikið reiðarslag. Ég hef undanfarna daga fylgst náið með framvindu þessa máls og ljóst er að tjónið er mikið og tilfinnanlegt. Unnið er að því að átta sig á umfangi riðuveikinnar og er Matvælastofnun nú að kortleggja mögulega útbreiðslu. Ég hef gefið út skýr fyrirmæli til ráðuneytisins og Matvælastofnunar um að við gerum allt sem í okkar valdi stendur til að styðja við bændur á svæðinu í gegnum þetta áfall,“ segir Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Á heimasíðu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins kemur fram að Matvælastofnun hafi undanfarna daga unnið að sýnatöku á svæðinu. Þar segir að fyrstu niðurstöður gefi til kynna að sterkur grunur sé um að riðuveiki sé til staðar í sauðfé á þremur búum en endanleg niðurstaða liggi þó ekki fyrir enn. Ekki hefur greinst riðuveiki á þessu svæði í Tröllaskagahólfi frá árinu 2000.

„Heildarfjöldi gripa sem skera þarf niður liggur ekki fyrir en sterkar vísbendingar eru um að hann verði umtalsverður. Í ljósi þess hefur Matvælastofnun óskað eftir að Umhverfisstofnun liðsinni stofnuninni um lausnir við förgun. Þá liggur fyrir að kostnaður ráðuneytisins vegna málsins mun verða töluverður en ríkið mun greiða bætur og kostnað vegna riðuveikinnar til eigenda búfjár þar sem niðurskurður er nauðsynlegur,“ segir í færslunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir