Nöfn í Skagfirskum æviskrám á tímabilinu 1890-1950 aðgengileg á Netinu
Fyrir þremur árum hlaut Sögufélag Skagfirðinga styrk frá Menningarráði Norðurlands vestra til að gera tölvutæka skrá yfir alla þá sem þættir eru um í Skagfirskum æviskrám. Ragnar Eiríksson hóf það verk og lauk við að nafntaka samtals þau 11 bindi sem út eru komin um Skagfirðinga á tímabilinu 1890-1950. Sú skrá er nú orðin aðgengileg á heimasíðu félagsins.
Eftir eru 7 bindi frá tímabilinu 1850-1890 og hefur Ólöf Sigurðardóttir bókmenntafræðingur nýlega tekið við þessu verki og er vonast til að því ljúki í vetur. Þá verður aðgengileg á einum stað tilvísun á alla þá sem skrifaðir hafa verið þættir um í Skagfirskum æviskrám til þessa, samtals 6000-7000 manns.
/Sögufélag Skagfirðinga