Nokkrar myndir frá hátíð á Hofsósi
Það var bara sól og fjör á Hofsósi laugardag í Jónsmessuhátíð þegar einn ljósmyndara Feykis kíkti ufrum upp úr hádegi. Þar var fjölmenni og þessi fína stemning; gestir sleiktu sólargeisla í sundlauginni og ís í brauði í splunkunýrri verslun KS.
Markaður var við skólann og þar kenndi margra grasa og gesta, forláta dráttarvélar voru til sýnis, stífbónaðar fyrir keppni. Ekki varð þverfótað fyrir ljósmyndurum á vegum Feykis svo undirritaður stoppaði bara stutt en hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá skreppitúrnum.