Nokkrar spýjur í Óslandshlíð
feykir.is
Skagafjörður
25.03.2014
kl. 11.59
Aðfararnótt sl. föstudags eða á föstudagskvöld féllu nokkrar snjóspýjur úr hlíðunum fyrir ofan bæina frá Miklabæ að Tumabrekku í Óslandshlíð í Skagafirði. Ekkert tjón varð á fólki né búfénaði en girðingar munu þarfnast lagfæringar.
Að sögn Garðars Páls Jónssonar á Melstað í Óslandshlíð eru um að ræða sex til átta spýjur, sem hver um sig eru 20-100 metrar á breidd, og er sú stærsta við Teig. „Þar vantaði ekki margra metra að hrossum sem þar eru. Spýjan sem er við Kross tók merkjagirðinguna að Þúfum, hinar voru saklausar er nokkuð stórar,“ sagði Garðar þegar Feykir hafði samband við hann í morgun.