Norðurlandsmeistarar í golfi
Sunnudaginn 1. september var lokamót Norðurlandsmótaraða barna-og unglinga haldin á Jaðarsvelli á Akureyri. Jafnframt voru Norðurlandsmeistarar í öllum flokkum krýndir. Að venju átti Golfklúbbur Sauðárkróks fjölda keppenda á mótinu. Hákon Ingi Rafnsson sigraði mótið í flokki 12 ára og yngri og sigraði hann þar með í öllum fjórum mótum sumarsins í flokknum.
En eins og áður segir voru einnig krýndir Norðurlandsmeistarar í þessu móti. Þar telja þrjú bestu mótin af fjórum. Golfklúbbur Sauðárkróks eignaðist tvo Norðurlandsmeistara að þessu sinni en það voru þeir Hákon Ingi Rafnsson í flokki 12 ára og yngri og Arnar Geir Hjartarson sem var Norðurlandsmeistari í flokki 17-18 ára pilta.