„Nú látum við verkin tala“

Á degi Rótarý, sem er næstkomandi laugardag, mun Rótarýklúbbur Skagafjarðar blása til fundar þar sem ræddar verða hugmyndir að átaksverkefni varðandi uppbyggingu útivistarsvæðis í Litla-Skógi á Sauðárkróki.

„Þetta er samfélagsverkefni sem Rótarýklúbburinn tók að sér og þetta er í rauninni verkefni sem er búið að vera í umræðunni í mörg ár innan sveitarfélagsins. Hinir ýmsir hópar hafa komið saman í gegnum árin og langað til að gera eitthvað fyrir þetta svæði. Þetta er dásamlegt svæði sem við eigum þarna, nánast inni í miðjum bænum,“ sagði Magnús Barðdal, Rótarýmaður, í samtali við Feyki í gær. „Núna ætlum við í Rótarýklúbbnum að láta verkin tala. Hugmyndin er sú að kynna verkefnið á laugardaginn, fara gönguferð um gamla bæinn og bjóða upp á kaffi og kleinur á Kaffi Krók.“

Rótarý menn vilja fylkja liði um málefni Litla Skógar

Magnús segir hugmyndina vera að efna til hönnunarsamkeppni um svæðið og veita vegleg verðlaun fyrir bestu tillöguna. „Það sem við sjáum fyrir okkur er að vinna þetta með sveitarfélaginu og fyrirtækjunum hérna í bænum og einstaklingum. Hugsun okkar er sú að fá alla þessa klúbba sem eru starfræktir hér á svæðinu til að taka þátt í þessu með okkur.“

Magnús vonast til að hægt verði að setja hönnunarkeppnina fljótlega í gang, en væntingar eru um að sem flestir teikni upp hugmyndir að svæðinu og síðan verði besta tillagan valin. „Á vordögum ætlum við að byrja að vinna eftir þessum tillögum og hugmyndin er sú að hafa ákveðnar vinnuhelgar þar sem við hvetjum alla bæjarbúa til að koma og taka til hendinni, með vinnuhanskana og ruslapokana,“ sagði Magnús ennfremur. „Við hvetjum alla sem hafa minnsta áhuga á þessu verkefni að koma þarna og hlusta á það sem við höfum fram að færa og koma með einhverjar tillögur og hugmyndir,“ sagði Magnús að lokum.

Fleiri fréttir