Ný ásýnd Byggðastofnunar

Ásýnd Byggðastofnunar tók breytingum nú um áramótin þegar nýtt merki stofnunarinnar var tekið í notkun. Hugmynda- og þróunarvinna vegna nýrrar ásýndar hófst í byrjun síðasta árs og var unnin í samvinnu við auglýsingastofuna Hvíta húsið.

Í upphafi var lögð áhersla á að merkið væri táknrænt fyrir fjölbreytta starfsemi stofnunarinnar. Grunnur nýja merkisins er sólarupprásin, rétt eins og í því eldra. Mislangir geislar sólarinnar vísa til uppbyggingar og/eða vaxtar sprotafyrirtækja sem eru mislangt á veg komin á þróunarbraut sinni. Merkið vísar einnig lauslega í útlínur Íslands. Litur sólarinnar við sólarupprás er aðallitur merkisins.

Til eru nokkur litbrigði af merkinu til notkunar við mismunandi aðstæður og tilefni. Guðmundur Bernharð Flosason, grafískur hönnuður hjá Hvíta húsinu, er höfundur merkisins. Nýja merkið tekur við af merki Tómasar Jónssonar, grafísks hönnuðar, sem hefur fylgt Byggðastofnun frá upphafi. Það hefur þjónað stofnuninni vel til þessa.

Byggðastofnun var komið á fót sem sjálfstæðri ríkisstofnun með lögum nr. 64/1985 og heyrði hún í upphafi undir forsætisráðherra. Stofnunin, sem verður 28 ára á þessu ári, tók yfir eignir og skuldbindingar Byggðasjóðs. Byggðastofnun hefur starfað nánast óbreytt frá upphafi en með lögum nr. 106/1999 var þó ýmsum þáttum í starfseminni breytt. Þá var Byggðastofnun flutt undir iðnaðarráðherra (nú atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra), og í stað þingkjörinnar stjórnar er stjórnin nú skipuð af ráðherra. Einnig er lögð meiri áhersla á rannsóknarhlutverk Byggðastofnunar á sviði byggða- og atvinnuþróunar en áður var.

Árið 1998 tók þróunarsvið stofnunarinnar til starfa á Sauðárkróki. Þá hófst flutningur starfseminnar sem lauk í júlí 2001 þegar öll starfsemin í Reykjavík var flutt á Sauðárkrók. Byggðastofnun hefur verið til húsa að Ártorgi 1 frá því um vorið 2002.

Frá þessu er sagt á heimasíðu Byggðastofnunar.

 

Fleiri fréttir