Ný gata í Túnahverfi

Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkti á fundi 24. febrúar sl. tillögu að deiliskipulagi fyrir nýja götu, Nestún, í Túnahverfinu svokallaða á Sauðárkróki. Á sama fundi var einnig samþykkt tillaga að deiluskipulagi fyrir Depla í Fljótum.

Yfirlitsmynd af deiliskipulagi fyrir Nestún á Sauðárkróki, tekin af Skagafjordur.is 

Á heimasíðu sveitarfélagsins kemur fram að gert sé ráð fyrir 14 nýjum byggingarlóðum fyrir einbýlishús í Nestúni en staðsetning götunnar er ofan Laugatúns og liggur samsíða henni. Gert er ráð fyrir sjö lóðum sitthvoru megin götu, tveggja hæða húsum að austan en einnar hæðar húsum vestan götu.

Uppdráttur fyrir Depla, tekinn af Skagafjordur.is

Á Deplum í Fljótum tekur deiliskipulagið til um 9,3 ha lands, sem er skilgreint í gildandi aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2009-2021, sem verslunar- og þjónustusvæði. Megininntak deiliskipulags tekur til núverandi veiði- og gistihúsa, reits og stækkunarmöguleika með nýjum reit og er gert ráð fyrir allt að 3000m2 byggingarmagni samanlagt á báðum reitum. Þá er settur út byggingarreitur þar sem er ætlunin að byggð verði allt að 250m2 þjónustubygging fyrir ferðamenn. Einnig eru settir út tveir reitir sem eru ætlaðir til afmörkunar fyrir eldsneytisgeymslur og eldsneytisdælur.

Sjá nánar HÉR

 

 

Fleiri fréttir