Ný heimasíða Tindastóls
Ungmennafélagið Tindastóll hefur tekið í notkun nýja heimasíðu en með henni er vonast til að upplýsingaflæði til foreldra og iðkenda muni batna frekar. Komnar eru inn helstu upplýsingar um starfsemi deildarinnar og allra flokka og verður heimasíðan uppfærð reglulega.
Á heimasíðunni, Tindastoll.is, eru góðar upplýsingar fyrir alla og ekki síst foreldra sem þurfa að fylgjast með æfingatíma hvers flokks og upplýsingar um þjálfara flokka.
Þá er foreldrum bent á hlekkinn neðst í síðum flokkanna en þar er hlekkur á facebook síður þeirra en mikilvægt er að allir foreldrar séu skráðir á þær síður þar sem allar helstu upplýsingar um mót og fundi koma þar inn.