Ný Skagfirðingabók er komin út
Ný Skagfirðingabók er komin út og er um að ræða 35. hefti en samkvæmt heimasíðu Sögufélags Skagfirðinga er efni bókarinnar fjölbreytt og ríkulega myndskeytt.
Fyrsta grein blaðsins eru æviminningar Valgerðar Guðrúnar Sveinsdóttur frá Felli í Sléttuhlíð. Anna Dóra Antonsdóttir skyggnist til siðskiptaaldar í greininni Af Þórunni Jónsdóttur og Hrafni Brandssyni. Jón R. Hjálmarsson rifjar upp áhættusamar siglingar yfir Atlantshaf á stríðsárunum.
„Þá kemur áhugavert viðtal Hjalta Pálssonar við dr. Jakob Benediktsson frá Fjalli í Sæmundarhlíð. Ólafur Björn Guðmundsson frá Tungu í Gönguskörðum rifjar upp minningabrot frá bernskutíð, og Halldór Ármann Sigurðsson kemur á framfæri leiðréttingum við grein sína um Guðrúnu Ólafsdóttur á Bjarnastöðum í Unadal, sem birtist í 24. hefti Skagfirðingabókar,“ segir um efni bókarinnar á heimasíðunni.
Þá kemur athyglisverð gáta eftir Sigurð Jónsson í Hróarsdal. Guðbrandur Þorkell Guðbrandsson og Hjalti Pálsson rekja sögu af sleða, sem gegndi margvíslegu hlutverki fyrir Skagfirðinga og Sæbjörg Freyja Gísladóttir fjallar um þjóðsagnasöfnun Jóns Árnasonar í grein sinni skilgetnar dætur þjóðarandans. Loks segir Hjalti Pálsson frá strandi flutningaskipsins Tejo við Almenningsnef í Fljótum 1899.
Bókin kostar kr. 5600,- og er hægt að panta hana með því að hringja í síma 453-6640 eða senda tölvupóst á netfangið saga@skagafjordur.is .