Nýársfagnaður á Mælifelli

Mikil stemning er fyrir nýársfagnaðinum sem haldinn verður á Mælifelli á Sauðárkróki  þann fyrsta janúar nk. frá kl 23:00 til kl. 03:00 og lítur út fyrir að vel verði mætt.

Ætla má að hin nýstofnaða hljómsveit Blöðrurnar sem skipuð er alkunnum stuðblöðrum úr Skagafirði eigi eftir að skemmta sér og öðrum á þessu sveitaballi þar sem aldurstakmark er 16 ár og er miðaverð einungis kr. 1500. Þá verður boðið upp á fríar sætaferðir frá Varmahlíð, Hólum og Hofsósi.

Allir að mæta í sparifötunum með góða skapið með ykkur.

Sjá nánar HÉR

Fleiri fréttir