Nýprent Open - sunnudaginn 3. júlí

Opna Nýprent mótið í golfi verður haldið sunnudaginn 3. júlí nk. en mótið er hluti af Norðurlandsmótaröð barna og unglinga. Keppt verður í eftirfarandi flokkum: 17-18 ára strákar og stelpur - 18 holur; 15-16 ára strákar og stelpur - 18 holur; 14 ára og yngri ára strákar og stelpur - 18 holur; 12 ára og yngri ára strákar og stelpur - 9 holur.

Byrjendaflokkur- strákar og stelpur spila 9 holur af sérstaklega styttum teigum, svokkölluðum gullteigum og verða nándarverðlaun og vippverðlaun veitt í öllum flokkum. Þá verða Nýprent meistarar krýndir sem og fyrir lægsta skor í 18 holu flokkum. Einnig verða aukaverðlaun veitt strák og stelpu sem verða með flesta punkta í 18 holu flokkum og eru með virka forgjöf.

Súpan verður að sjálfsögðu á sínum stað og síðan verða grillaðar pylsur handa öllum í mótslok.

Opnað hefur verið fyrir skráningu á www.golf.is.

Hægt er að sjá myndir frá fyrri mótum á bloggsíðu unglingastarfsins.

Fleiri fréttir