Nýr forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands skipaður

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra hefur skipað Jón Helga Björnsson forstjóra nýrrar Heilbrigðisstofnunar Norðurlands sem tekur til starfa 1. október. Nýja stofnunin verður til við sameiningu heilbrigðisstofnananna á Blönduósi, Sauðárkróki, Fjallabyggð, heilsugæslustöðvarnar á Dalvík og Akureyri og Heilbrigðisstofnun Þingeyinga.

Á vef velferðaráðuneytisins kemur fram að skipunin byggist á mati lögbundinnar nefndar sem mat hæfni umsækjenda. Samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu skal þriggja manna nefnd meta hæfni umsækjenda um stöður forstjóra heilbrigðisstofnana og var það mat hæfnisnefndarinnar að Jón Helgi væri hæfastur þeirra átta sem sóttu um embættið.

Jón Helgi hefur gegnt embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga frá árinu 2007. Í umsögn hæfnisnefndar er m.a. bent á að Jón Helgi hafi víðtæka reynslu sem stjórnandi í atvinnurekstri og hafi leitt umfangsmiklar skipulagsbreytingar á þeim vettvangi. Í núverandi starfi hafi hann mætt kröfum um hagræðingu og endurskipulag með góðum árangri. Þá kemur fram að hæfnisnefndin hafði áður metið Jón Helga vel hæfan til starfa sem forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri.

Forstjórar heilbrigðisstofnana eru skipaðir af ráðherra til fimm ára í senn.

Fleiri fréttir