Nýr starfsmaður hjá SSNV

Laufey Kristín Skúladóttur hefur verið ráðin í starf atvinnuráðgjafa á Sauðárkróki hjá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Hún er með BA í hagfræði frá Háskóla Íslands og Meistaragráðu í stjórnun nýsköpunar og viðskiptaþróunar frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn.

Laufey hefur m.a. starfað við  innkaupadeild Hagkaups, hjá HF verðbréfum og víðar.  Hún er nú framkvæmdastjóri tónlistarhátíðarinnar Gærunnar.  Laufey mun hefja störf 1. ágúst nk. og leysa Katrínu Maríu Andrésdóttur sem gegnir starfi framkvæmdastjóra SSNV tímabundið.

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir