Nýr starfsmaður Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands á Sauðárkróki

Ingi Vífill Guðmundsson nýr starfsmaður Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands á Sauðárkróki
Ingi Vífill Guðmundsson nýr starfsmaður Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands á Sauðárkróki

Ingi Vífill Guðmundsson, hefur verið ráðinn á starfsstöð Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands á Sauðárkróki. Sagt er frá því á heimasíðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar að Ingi Vífill hafi reynslu á rekstri sprotafyrirtæka og nýsköpunar á sviði markaðs- og kynningarmála og sé með fjölbreytta menntun og er meðal annars grafískur hönnuður.

„Ingi Vífill hefur unnið að markaðssetningu á samfélagsmiðlum hjá aðilum eins og auglýsingastofunni ENNEMM, Ölgerð Egils Skallagrímssonar og Hannesarholti. Frumkvöðla- og hönnunarhugsun er honum eðlislæg. Starfsstöð hans verður hjá Byggðastofnun.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir