Nýsköpunar- og tæknibraut í FNV
Á vorönn 2014 verður boðið upp á nám á Nýsköpunar- og tæknibraut við FNV og er það nýjung í námsframboði skólans. Á Nýsköpunar- og tæknibraut er áhersla lögð á grunngreinar í frumkvöðla- og markaðsfræði, hönnunarsögu, mynd- og sjónlist, verklegar smiðjur og tölvuvinnslu, sem og almennar kjarnagreinar.
Brautinni getur lokið með stúdentsprófi og er nám á henni góður undirbúningur fyrir frekara nám, m.a. í listgreinum, verkfræði, félagsfræði, sálfræði, sögu, menntavísindum, íslensku eða iðngreinum. Brautin er 120 feiningar (ca. 75 einingar).
Á vorönn 2014 verður boðið upp á nám í leður- og roðsmiðju og trésmiðju. Áfangalýsingar er að finna á heimasíðu skólans. Nánari upplýsingar fást hjá stjórnendum skólans.