Nýtt aðalskipulag fyrir Húnaþing vestra 2014-2026
Sveitarstjórn Húnaþings vestra hefur ákveðið að vinna nýtt aðalskipulag fyrir sveitarfélagið. Lýsing verkefnis og matslýsing tekur til Aðalskipulags Húnaþing vestra fyrir tímabilið 2014-2026.
Í auglýsingu í nýjasta eintaki Sjónaukans kemur fram að um sé að ræða aðalskipulag fyrir sameinað sveitarfélag Húnaþings vestra og Bæjarhrepps. Lýsing verkefnis var samþykkt til kynningar í sveitarstjórn 26. mars 2013 og er í samræmi við 1. mgr. 30 gr. skipulagslaga nr.123/2010 og lög um umhverfismat áætlana 105/2006.
Kynning matslýsingarinnar fer fram með þeim hætti að hún liggur frammi á á skrifstofu Húnaþings vestra frá 10. apríl 2013 og til 30. apríl 2013 og verða gögnin aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins www.hunathing.is. Ennfremur verður kynningarfundur fyrir íbúa og aðra hagsmunaaðila, staðsetning og tími kynningarfundar verður auglýstur síðar.