Nýtt dreifikerfi RÚV frá 30. september

Stafrænt dreifikerfi RÚV verður tekið í notkun í áföngum á árinu 2014. Samkvæmt fréttatilkynningu frá RÚV er nú komið að Sauðárkrók 550, Sauðárkrók 551, Varmahlíð 560, Hofsós 565, Hofsós dreifbýli 566 og Fljót 570. Skipt verður yfir í stafrænar útsendingar þann 30. september.

„Stafræn tækni hefur rutt sér til rúms á fjölmörgum sviðum mannlífsins á síðastliðnum árum. Hljómplötur og plötuspilarar eru löngu horfin úr almenningseign og hljómsnældur og segulbönd heyra sögunni til. Nýrri fyrirbæri eins og DVD, VOD og minnislyklar hafa komið í staðinn.Um allan heim er verið að leggja niður hliðrænt dreifikerfi sjónvarps. Það hefur þegar verið gert í nágrannalöndum okkar og verður gert í áföngum á þessu ári hjá RÚV. Góðu fréttirnar eru að með stafrænum útsendingum aukast myndgæðin til muna,“ segir í fréttatilkynningunni.

Íbúar á svæðinu, sem ekki eru með myndlykil og nota loftnet, er ráðlegt að fara inn á eftirfarandi vefsíður til að fá nánari upplýsingar: www.ruv.is/stafraent, www.vodafone.is/sjonvarp/ruv eða www.sart.is, eða hringja í þjónustuver Vodafone í síma 1414.

Fleiri fréttir