Nýtt hestamannafélag formlega stofnað í gær

Stjórn hins nýstofnaða hestamannafélags, Skagfirðings. Mynd/Páll Friðriksson.
Stjórn hins nýstofnaða hestamannafélags, Skagfirðings. Mynd/Páll Friðriksson.

Stofnfundur fyrir Skagfirðing, nýtt hestamannafélag í Skagafirði, fór fram í Tjarnabæ í gærkvöldi. Að sögn Guðmundar Sveinssonar, hins nýkjörna formanns, var þetta fjölmennur og góður fundur og voru viðstaddir einu máli um að þetta væri framfaraskref fyrir hestamenn í firðinum. 

Kosið var í stjórn félagsins en auk Guðmundar skipa hana Ása Hreggviðsdóttir, Skapti Steinbjörnsson, Haraldur Þór Jóhannsson og Pétur Örn Sveinsson. Varamenn eru Elvar Einarsson og Ragnar Pálsson. Stjórn á eftir að skipta með sér verkum. 

„Hin félögin þrjú - Léttfeti, Stígandi og Svaði - sem eru að sameinast þessu eina félagi eiga eftir að halda sína aðalfundi. Það verður gert á næstu dögum og þá verða þau formlega lögð niður. Þá verður þessi sameining til en eftir þann gjörning ætlum við að hittast aftur og leggja betur línurnar,“ sagði Guðmundur. 

Á fundinum voru gerðar nýjar samþykktir, rætt um nýtt lógó félagsins og var stjórninni falið að vinna það mál áfram. Einnig var rætt aðeins um framtíðina og hvað menn sjá fyrir sér. „Mér sýnist á öllu að kraftar þessarar nýju stjórnar fari næstu vikurnar í að koma þessu formlega á koppinn,“ sagði hann að lokum. 

Fjölmennt var á fundinum

 

Fleiri fréttir