Nýtt hestamannafélag mun heita Skagfirðingur

Frá aukaaðalfundi hestamannafélaganna í Skagafirði, þar sem sameining þeirra var samþykkt.
Frá aukaaðalfundi hestamannafélaganna í Skagafirði, þar sem sameining þeirra var samþykkt.

Eins og Feykir hefur fjallað um var nefnd um sameiningu hestamannafélaganna í Skagafirði að störfum stóran hluta síðasta árs. Ákveðið var að stofna nýtt hestamannafélag í Skagafirði við sameiningu félaganna þriggja sem fyrir voru, Svaða, Léttfeta og Stíganda. Þá hefur verið ákveðið að nýtt félag beri nafnið Skagfirðingur.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórnum hestamannafélaganna í Skagafirði og þar segir ennfremur að miklar vonir séu bundnar við hið nýja félag. Auglýst var eftir tillögum, kosið milli nokkurra þeirra og varð nafnið Fluga fyrir valinu. Síðar var ákveðið að hafa nafnakosningu á ný og í þeirri kosningu varð nafnið Skagfirðingur fyrir valinu. 

Fleiri fréttir