Nýtt hundasvæði tekið í notkun á Sauðárkróki

Nýja hundasvæðið við Borgargerði á Sauðárkróki. Mynd:skagafjordur.is
Nýja hundasvæðið við Borgargerði á Sauðárkróki. Mynd:skagafjordur.is

Lokið var við uppsetningu á hundasvæði við Borgargerði á Sauðárkróki í desembermánuði. Svæðið er staðsett við Borgargerði, á móts við leikskólann Ársali. Aðgengi að svæðinu er frá Borgargerði og hægt er að leggja bílum við svæðið.

Á vef Sveitarfélagsins Skagafjarðar segir að á svæðinu hafi verið komið fyrir borði og bekkjum, tvær ruslatunnur verið settar upp og skilti með umgengisreglum fyrir svæðið. Stefnt sé að því að koma fyrir einföldum leiktækjum inni á svæðinu með vorinu í samráði við hundaeigendur.

Hundasvæðið er um 1.400 mog innan þess er afgirt minna svæði fyrir smærri hunda. Eru notendur svæðisins hvattir til að ganga vel um það og fylgja þeim reglum sem um það gilda.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir