Nýtt ómtæki afhent við Heilbrigðisstofnunina á Hvammstanga
Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga var afhent nýtt ómtæki þann 2. júní síðastliðinn. Á vef Norðanáttar kemur fram að safnað var fyrir kaupum á því síðasta vetur, söfnun gekk í alla staði vel og undirtektir voru mjög góðar.
„Nægt fé safnaðist til að kaupa vandað og handhægt tæki sem vonandi nýtist vel í framtíðinni til að greina og fyrirbyggja ýmsa sjúkdóma. Þar með verður hægt að veita sjúklingum betri þjónustu og meðferð. Nýja ómtækið er af gerðinni Sonosite Edge II frá fyrirtækinu Icepharma og fylgja því þrír hausar til mismunandi greininga. Tækið er með 5 ára ábyrgð og kostaði um 6,2 milljónir fyrir utan virðisaukaskatt sem fæst endurgreiddur, þannig að heildarverð tækisins er rúmar 7,6 milljónir króna,“ segir á norðanátt.is.
Alls söfnuðust um 7,7 milljónir með ýmsum móti, um 3,2 milljónir söfnuðust á kótilettukvöldi Lionsklúbbsins Bjarma í samstarfi við ýmsa aðila. Þá gáfu nokkrir ungir menn ágóðann af Pallaballi, rúmar 400 þúsund krónur, og ýmis félagasamtök fyrirtæki og einstaklingar lögðu um 4,1 milljón inn á reikning söfnunarinnar.
Ágúst Oddsson læknir veitti tækinu viðtöku að viðstöddu fjölmenni og sagði Ágúst frá því hvernig hægt væri að nýta það. Að ávarpi loknu þakkaði hann íbúum Húnaþings fyrir rausnarlega gjöf. Guðmundur Haukur Sigurðsson og Daniel Þór Duch Gunnarsson tók til máls fyrir hönd gefenda.
Myndir frá afhendingunni má skoða á vef Norðanáttar.