Nýtt tónlistarmyndband með Alexöndru Chernyshovu

Alexandra Chernyshova hefur gefið út nýtt tónlistarmyndband við lagið „Tears in Heaven“ eftir Eric Clapton. Lagið er á síðasta geisladisk Alexöndru, „Aðeins þú“ en diskurinn fylgdi með ljósmyndabókinni „Ljós og náttúra Skagafjarðar“ eftir Jón Hilmarsson.

Að sögn Alexöndru og Jóns er myndbandið er sambland af Stop Motion myndatöku þar sem förðunarferlið var tekið með ljósmyndum, alls teknar 800 myndir á 80 mín. Það var síðan dregið saman í ca. 20 sek og 200 myndir.

„Útimyndatakan átti sér stað í Óslandshlíðinni núna í byrjun nóvember og Samgönguminjasafnið í Stóragerði var okkur síðan innan handar með þrjá glæsilega fornbíla sem koma við sögu í myndbandinu,“ sagði Alexandra.

Hér er má sjá myndbandið við „Tears in Heaven“.

 

 


 

Fleiri fréttir