Óánægja með starfsdaga á leikskólum

Á fundi fræðslunefndar Skagafjarðar í síðustu viku var lagt fram erindi frá 16 foreldrum barna í leikskólanum Ársölum, dags. 2. nóvember s.l., þar sem lýst er óánægju með breytingar á fundartíma leikskólastarfsmanna. Telja foreldrar þessir óviðunandi að leggja niður hefðbundna starfsemi leikskólans í alls tvo daga á ári vegna starfsmannafunda.

 

Fræðslunefnd upplýsti að ákvörðun um að færa starfsmannafundi inn á dagvinnutíma starfsfólks í upphafi þessa skólaárs var gerð í hagræðingarskyni. Með þessu fyrirkomulagi er sveitarfélagið jafnframt að gefa starfsfólki leikskólans tækifæri til að vinna að faglegum störfum í þágu leikskólabarna á dagvinnutíma líkt og aðrar sambærilegar starfsstéttir geta gert. Fræðslunefnd hvetur stjórnendur leik- og grunnskóla til aukins samráðs vegna þessa. Sigríður Svavarsdóttir óskaði eftir að bókað yrði að hún taki undir með afstöðu foreldra og óskar eftir að betri lausn verði fundin.

Fleiri fréttir