Óboðinn gestur í Túnahverfinu

Aðfaranótt sunnudags gerði óboðinn gestur sig heimakominn í húsi í Túnahverfinu á Sauðárkróki og tók með sér fartölvu og yfirhöfn sem hafði að geyma peningaveski húsráðanda. Íbúi hússins var var við manninn sem sagðist hafa farið húsavillt.

 

Íbúinn ætlaði að aðstoða þann villta sem notaði tækifærið og lét sig hverfa er íbúinn fór úr augsýn eitt augnablik en áttaði sig síðar á því er hinn óboðni gestur var á braut að hann hefði haft með sér fartölvu og yfirhöfnina sem áður er greint frá. Tölvan sem var í tösku, fannst síðar við Ábæ en yfirhöfnin er enn ófundin.

Ekki er vitað hver var þarna á ferðinni og er hans nú leitað en ef einhver getur gefið vísbendingar um hver þar var er hann vinsamlegast beðinn að hafa samband við Lögregluna á Sauðárkróki.

Aldrei er of oft brýnt fyrir fólki að læsa húsum sínum og bílum því „sjaldan gera óboðnir gestir boð á undan sér“.

Fleiri fréttir