Ófært fram að Merkigili

Vegurinn í Mosgili í Austurdal í Skagafirði milli bæjanna Stekkjarflata og Gilsbakka hefur fengið að kenna á leysingum nú nýverið því hann hefur rofnað og annað vegræsið horfið niður gilið. Það er greinilegt af myndinni að dæma sem Jakob R. Jóhannsson tók að mikið hefur gengið á þegar vegurinn skolaðist burt.

Vegna þessa er ófært fram að Merkigilinu og rétt að fólk viti af því.

Fleiri fréttir