Öflug heilbrigðisþjónusta og heilsugæsla um land allt
Sjöundi landsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs verður haldinn að Hofi á Akureyri helgina 28. - 30. október 2011. Fjölmargar ályktanir verða teknar fyrir frá einstaklingum, svæðisfélögum og öðrum stofnunum flokksins og er svæðisfélag VG í Skagafirði eitt af þeim félögum sem leggur ályktun fyrir landsfundinn.
Hljómar hún svo:
“Landsfundur VG ítrekar mikilvægi góðrar heilbrigðisþjónustu og heilsugæslu fyrir alla landsmenn. Sérstök áhersla er lögð á að standa vörð um þjónustuna á hinum minni heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni og minnt á að öflug heilbrigðisþjónusta er ein af grunnstoðum búsetu um land allt. Fundurinn lýsir áhyggjum sínum yfir þeim mikla niðurskurði sem áfram er boðaður í heilbrigðiskerfinu og bitnar ekki síst á minni heilbrigðisstofnunum í dreifbýlinu sem sumar eru nú þegar illa leiknar vegna niðurskurðar. Þessi mikli niðurskurður er í besta falli vafasamur og má ekki verða til þess að höggva á grunnbyggingu heilbrigðis- og velferðarkerfisins í öllu landinu.
Fundurinn hafnar því að gerðar verði grundvallarbreytingar á skipulagi þeirrar heilbrigðisþjónustu sem byggð hefur verið upp í landinu á undanförnum áratugum hvað varðar aðgengi að heilbrigðis- og sjúkraþjónustu í heilu landshlutunum og leggur áherslu á jafnan rétt landsmanna til velferðarþjónustu óháð búsetu. Fundurinn ítrekar ennfremur fyrri ályktanir um að bein aðkoma heimamanna að stjórnum heilbrigðisstofnanna verði tryggð á nýjan leik. Landsfundur VG vill minna á að fleiri leiðir eru færar í hagræðingu í heilbrigðiskerfinu en beinn niðurskurður, þ.m.t. að auka samvinnu og nýta sérstöðu hverrar stofnunar mun meira en gert er. Að beina öllu álagi í heilbrigðiskerfinu á tvo staði, Akureyri og Reykjavík, er engum til hagsbóta þegar til lengri tíma er litið. Vinstrihreyfingin grænt framboð var stofnuð til að standa vörð um jöfnuð og velferð. Þessi stefnumarkmið þurfa að birtist í verki í fjárlagagerð stjórnvalda.“