Óhapp við lendingu

Einkaflugvél lenti í óhappi við lendingu á flugvellinum á Lambanesi í Fljótum, í fyrrakvöld. Lögreglan á Sauðárkróki fór á vettvang eftir að tilkynning barst frá neyðarlínunni.

Þrír menn voru um borð í vélinni sem lenti á maganum þegar hjól hennar brotnaði við lendingu. Betur fór en fyrst á horfðist þar sem mennirnir sluppu með skrámur í óhappinu og komu sér sjálfir á sjúkrahús þar sem þeir fengu aðhlynningu. Flugvélin er þó talsvert skemmd.

Rannsóknarnefnd flugslysa er með málið í rannsókn og komu þeir til að skoða aðstæður á aðfaranótt mánudags. Flugvélin var flutt suður til Reykjavíkur í gær. Vegna stærðar hennar var hún flutt með lögreglufylgd af öryggisástæðum.

Fyrir utan flugóhappið var helgin að öðru leyti róleg hjá lögreglunni, að sögn fulltrúa hennar á Sauðárkróki. En flugslys eru sem betur fer fátíð í Skagafirði.

Fleiri fréttir