Ólafshús styrkir Golfklúbbinn

Veitingahúsið Ólafshús er einn af aðal styrktaraðilum GSS og í vikunni var kynnt mótaröð, svokölluð Ólafshúsmótaröð, sem fram fer á miðvikudögum í sumar. Haldin verða 10 mót og veitir Ólafhús verðlaun fyrir þau öll en jafnframt fyrir besta árangur sumarsins með og án forgjafar. Þá var kynnt nýbreytni í mótaröðinni, svokölluð „besta hola“, þar sem kylfingar geta valið þrjár bestu holurnar á hverjum hring og skráð í sérstakt mót, sem gert verður upp í lok sumars.

Fyrsta mótið var haldið í gær og var það jafnframt fyrsta mót GSS í sumar. Keppt var bæði í höggleik þ.e. hver fer á fæstum höggum og svo með forgjöf. Sigurvegari án forgjafar var Ingvi Þór Óskarsson en með forgjöf Hlynur Freyr Einarsson.

Sjá nánar HÉR

Fleiri fréttir