Ólafur Atli hlaut vinning í eldvarnargetraun

Ólafur Atli Þorsteinsson nemandi við Grunnskólann á Hólum vann eldvarnargetraun sem Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna efndi til við lok Eldvarnarviku, sem haldin var í nóvember sl., en sambandið stendur fyrir árlegu eldvarnarátaki í samvinnu við fagaðila og slökkviliðin í landinu. Þá eru öll börn í 3. bekk heimsótt og frædd um eldvarnir á heimilum og þær helstu hættur sem ber að varast.

Ólafur Atli fékk vinning sinn afhentan í dag, í tilefni af 112 deginum, og var það Svavar Birgisson sjúkraflutningamaður hjá Brunavörnum Skagafjarðar sem afhenti honum verðlaunin en þau eru aldeilis ekki af verri endanum, m.a. reykskynjari og nýi 10.000 kr. seðillinn.

Fleiri fréttir