Öll starfsemi Árskóla undir eitt þak
Á fimmtudaginn í síðustu viku var sögulegum áfanga náð þegar Árvist opnaði í nýju húsnæði í gömlu félagsaðstöðunni í kjallara Árskóla. Nú er starfsemi Árskóla loksins komin öll undir eitt þak við Skagfirðingabrautina á Sauðárkróki.
Frá þessu er sagt á heimasíðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar en fleiri myndir frá opnuninni er hægt að sjá hér.
