Ólögleg laxanet gerð upptæk

Lögreglan á Sauðárkróki lagði hald á fjögur ólögleg laxanet sem fundust við strandlengjuna milli Hofsóss og Sauðárkróks í síðustu viku.

Netin fundust eftir ábendingu frá veiðieftirlitsmanni sem hafði verið þar í eftirlitsferð. Fór hann þá ásamt lögreglumanni og björgunarsveitarmanni á vettvang og gerðu þeir fjögur net upptæk.

Samkvæmt talsmanni frá Lögreglunni á Sauðárkróki koma tveir menn til með að verða ákærðir en sektin fyrir slík brot getur verið nokkuð há.

Fleiri fréttir