Ómetanleg þjónusta á HS
Fyrir réttu ári komum við hjónin fyrst á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks. Hann á sjúkrabörum eftir heilaaðgerð fyrir sunnan, ég fylgdi með döpur og þreytt. Árangur af aðgerðinni var óviss, vonin lítil, sem og plássið á Landsspítalanum, - líklega var ódýrara að senda hann norður eina viku þar til geislameðferðin byrjaði. Á Króknum tók á móti okkur yndislegt fólk, það talaði mál sem við skildum, brosti og gaf sér tíma, - það birti til.
Svona byrjar pistill sem Sigurlína Kristinsdóttir skrifar og er birtur í aðsendum greinum hér á Feyki. Í pistlinum lýsir Sigurlína reynslu sinni af góðri þjónustu HS og því viðmóti starfsfólks sem einkennir gott fagfólk í baráttu fjölskyldu við erfiðar aðstæður.
„Þrátt fyrir stórskert opinber framlög, jafnvel á meintum góðæristímum, hefur Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki tekist að halda uppi ómetanlegri þjónustu. Starfsfólkið þar, gerði okkur lífið bærilegra í annars vonlausri baráttu. Þar og víðar úti á landi er til staðar tækjabúnaður, húsnæði og starfsþekking, sem fólkið í landinu á að njóta. Það er skammsýni að fyrirskipa sparnað á fjármunum sem þegar er búið að verja. Sárast er þó, að ætla að skerða möguleika fólks að dvelja nærri sínum heimahögum síðustu dagana og fá að deyja með reisn“, segir Sigurlína í niðurlagi pistilsins.