Óperutöfrar fá góða gagnrýni
Tónleikarnir Óperutöfrar voru haldnir í Hamraborg, stóra salnum í Hofi menningarhúsi, á Akureyrarvöku þann 26. ágúst síðastliðinn. Þeir fengu mjög góðar viðtökur þar sem salurinn var þéttsetinn. Tónleikarnir höfðu áður verið haldnir í Miðgarði menningarhúsi um verslunarmannahelgina, og voru þeir þá einnig mjög vel sóttir.
Hinn gamalreyndi gagnrýnandi Haukur Ágústsson var viðstaddur á tónleikunum á Akureyrarvöku og skrifaði „krítík“ um Óperutöfra.
Haukur skrifaði greinagóða rýni á tónleikunum, það sem honum fannst hafa tekist vel og hvað beturmátt fara .
Þar kemur meðal annars fram að í heild sinni hafi leikur hljómsveitarinnar, undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar, verið allgóður.
Haukur var í heildina ánægður með einsöngvarana. Hann sagði Sigríði Aðalsteinsdóttur mezzósópran hafi átt mjög skemmtilega spretti, einkum í aríu Rosinu úr óperunni Rakarinn frá Sevilla. Sagði hann Ágúst Ólafsson hafa góðan bassa, þróttmikinn og ákveðinn.
Haukur sagði Helgu Rós Indriðadóttur sópran hafa verið nánast „wagneríska“ á sviði, „auk þess skartar hún mikilli rödd sem fer vel á öllu sviði sínu.“
Um Gissur Pál Gissurarson sagði hann: „Gissur Páll hefur til að bera mjög áheyrilegan tenór sem naut sín prýðilega í þeim verkum sem hann flutti. Ekki spillti ánægjuleg sviðsframkoma hans sem hvergi brást og litaði túlkun hans skemmtilega.“
Karlakórinn Heimir tók þátt í flutningi nokkurra verkanna á tónleikunum. Kórinn var ekki fullskipaður, þar sem í hann vantaði um 20 raddir, en að mati Hauks kom það ekki að sök, „er ekki vafi á því að undirritaður hefur ekki í annan tíma heyrt kórinn betri.“
Gagnrýnina í heild sinni má lesa hér.