Opið hús hjá Kanínu á Syðri-Kárastöðum
Síðastliðinn laugardag opnaði Kanína ehf. húsakynni sín að Syðri-Kárastöðum í Húnaþingi vestra þar sem Birgit Kositzke er með kanínurækt. Gestum og gangandi gafst tækifæri á að skoða sig um og kynnast ræktuninni og í austurendanum var markaðsstemmning.
Þar sá Kvenfélagið Freyja um kaffi og kleinur, hægt var að gera kaup á ýmiskonar smávöru, kanínuskinni, uppskriftabæklingi fyrir kanínukjöt og smakka kanínupottrétt. Allt þetta á meðan leikið var á heimagerðan lírukassa, eins og greint er frá á Norðanátt.is.
Birgit áætlar að a.m.k. 200 manns hafi lagt leið sína í opna húsið á laugardaginn og er mjög ánægð með hvernig til tókst. Hún segist sérstaklega ánægð með heimsóknir heimafólks og segist finna fyrir áhuga á ræktuninni, það sé mikill áhugi á nýrri og innlendri vöru sem þessari. Þá segir hún nokkra bændur hafa verið áhugasama um að hefja kanínurækt til manneldis. Í dag er Birgit með um 400 kanínur.
Það þarf gott skipulag í kringum kanínuræktunina og hvað varðar sölu kjötsins þarf að skipuleggja í það minnsta fimm mánuði fram í tímann. Birgit er þó mjög bjartsýn á framhaldið í ræktuninni. "Allt fer vel af stað núna og ég vona að í lok sumars/byrjun hausts verði ég farin að selja kanínukjöt reglubundið í verslanir og veitingahús svo það verði auðveldara að skipuleggja ræktunina", segir Birgit í samtali við Norðanátt.is.
Í dag er hægt að nálgast kanínukjötið í Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga á Hvammstanga, hægt að panta í gegnum verslunina Frú Lauga í Reykjavík og Birgit segir að bráðum verði hægt að versla kjötið í nýrri verslun í Reykjavík, Matarbúrið, sem opnar á næstunni. Auk þess er kanínukjötið frá Birgit á matseðli veitingastaðarins Sjávarborg á Hvammstanga og veitingastaðnum Kolabrautin í Reykjavík.