Opið hús í Sölvanesi
Í gær voru fjölmargir bæir innan Ferðaþjónustu bænda með opið hús, í tilefni af útgáfu bæklingsins „Upp í sveit.“ Í Skagafirði tóku Magnús og Elín í Sölvanesi í fyrrum Lýtingsstaðahreppi á móti gestum, ásamt aðstoðarfólki sínu. Margir notuðu tækifærið og skruppu í bíltúr í góða veðrinu og gæddu sér á kaffi og vöfflum og skoðuðu aðstöðuna.
Í Sölvanesi hafa þau Magnús Óskarsson og Elín Sigurðardóttir rekið ferðaþjónustu frá 1990. Lengi kenndu þau bæði við Varmahlíðarskóla en hafa nú snúið sér alfarið að ferðaþjónustunni, auk þess að búa með kindur og hesta. Gisting er í íbúðarhúsi þeirra auk þess sem gamla íbúðarhúsið hefur verið gert upp sem gistihús með eldhúsaðstöðu. Alls er gisting í 15 rúmum. Unnið er að því að merkja gönguleiðir í nágrenninu og bæta netsamband á staðnum, auk þess sem upplýsingamappa á þremur tungumálum var nýlega útbúin. Þeim til aðstoðar við þess verkefni er Eydís, dóttir þeirra hjóna, en hún er nú í átta vikna verknámi í Sölvanesi, sem er hluti að diplómanámi í ferðaþjónustu við Háskólann á Hólum.
Þeir ferðamenn sem gista í Sölvanes eru um 95% erlendir gestir og langflestir bóka í gegnum Ferðaþjónustu bænda. Þegar líða fer á sumarið færist það iðulega í vöxt að gestir sem fara um Sprengisand komi og gisti. Eins hefur vetrarferðamennska færst í aukana, en segir Elín slæmt tíðarfar eins og síðustu tvo vetur gera hana erfiða á svæðum þar sem ekki er um daglegan mokstur að ræða.