Opnunarathöfn fyrsta áfanga Sundlaugar Sauðárkróks

Sundlaug Sauðárkróks.
Sundlaug Sauðárkróks.

Nú er framkvæmdum við fyrsta áfanga Sundlaugar Sauðárkróks að ljúka og í dag, mánudaginn 25. maí, klukkan 17:00 verður áfanginn tekinn formlega í notkun. Þar munu formaður byggingarnefndar sundlaugarinnar og formaður félags- og tómstundanefndar Sveitarfélagsins Skagafjarðar flytja ávörp og eru allir boðnir velkomnir til athafnarinnar.

Vegna opnunarathafnarinnar verður gestum ekki hleypt ofan í laugina milli klukkan 15 og 19 í dag. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir