Niðurfelling og lækkun byggðakvóta mikið högg fyrir smábátasjómenn

Sauðárkrókur. Ljósm./BÞ
Sauðárkrókur. Ljósm./BÞ

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd Sveitarfélagsins Skagafjarðar óskar eindregið eftir því að atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið endurskoði ákvörðun sína um niðurfellingu byggðakvóta til Sauðárkróks og lækkun hans til Hofsóss úr 40 tonnum í 34 tonn. Þetta kemur fram í fundargerð frá fundi nefndarinnar sl. föstudag.

Í fundargerð kemur fram að það var Drangey, smábátafélag Skagafjarðar, sem sendi nefndinni erindi og lýsti áhyggjum félagsmanna á fyrirhugaðri niðurfellingu byggðakvóta til Sauðárkróks og lækkunar til Hofsóss. Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd þakkaði fyrir erindið og tók undir áhyggjur félagsmanna. „Nefndin mun senda atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu bréf með rökstuðningi fyrir endurskoðun ákvörðunar og ósk þar að lútandi. Hvetur nefndin félagið til að gera slíkt hið sama,“ segir í fundargerðinni.

Fara fram á að tekið verði tillit til sérstakra aðstæðna á Hofsósi

Í fundargerð segir að nefndin fari fram á að byggðakvóta verði úthlutað til Sauðárkróks, líkt og undanfarin ár, þar sem niðurfelling kvótans yrði mikið högg fyrir smábátasjómenn á staðnum en 17 smábátar frá Sauðárkróki nýttu síðustu úthlutun byggðakvótans. Þá fer nefndin jafnframt fram á að tekið verði tillit til sérstakra aðstæðna á Hofsósi.

„Hofsós hefur átt undir högg að sækja frá því fiskvinnsla lagðist þar af og því mikilvægt að úthlutað sé auknum byggðarkvóta til byggðarlagsins líkt og gert hefur verið gagnvart byggðarlögum sem fengið hafa að taka þátt í verkefninu Brothættar byggðir á vegum Byggðastofnunar. Hofsós er á biðlista eftir að fá að taka þátt í því verkefni.

Nefndin hefur falið starfsmönnum að senda atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu bréf þessa efnis með ítarlegri rökstuðningi fyrir endurskoðun ákvörðunar þess.

Tillögur nefndarinnar um breytingar á reglugerð nr. 605/2015, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa, eru að lokum eftirfarandi og tekur nefndin fram að tillaga 1 á eingöngu við ef ráðuneytið fellst á að endurskoða ákvörðun sína um úthlutun byggðakvóta til Sauðárkróks.

1.            Nýtt ákvæði 4. greinar reglugerðarinnar verður: „Hámarksúthlutun fiskiskipa yfir 50 brúttótonnum af því aflamarki sem fallið hefur innan viðkomandi byggðarlags verður 6 þorskígildistonn á skip.“

2.            Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd leggur jafnframt til að upphaf 6. greinar reglugerðarinnar breytist og verði: „Fiskiskipum er skylt að landa til vinnslu í sveitarfélaginu að lágmarki 88% af því aflamarki sem þau fá úthlutað í gegnum byggðakvóta á tímabilinu...“ o.s.frv. Vinnsluskyldu verði aflétt að öðru leyti.

3.            Þá leggur atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd til að í 6. grein reglugerðarinnar komi ákvæði um að skylt sé að landa afla í því byggðarlagi / á þeim stað sem honum er úthlutað til innan sveitarfélagsins.

4.            Ennfremur leggur atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd til að sú skylda þeirra sem fá úthlutað byggðakvóta til að landa tvöföldu því magni sem þeir fá úthlutað til vinnslu, líkt og kveðið er á um í 6. grein reglugerðarinnar, verði felld niður.

 

Fleiri fréttir