Óska eftir rökstuðningi um útleigu Ljósheima
Þröstur I. Jónsson og Kolbrún Jónsdóttir á Sauðárkróki óska eftir því að Sveitarfélagið Skagafjörður rökstyðji ákvörðun menningar- og kynningarnefndar sem hafnaði tilboði þeirra til að reka Félagsheimilið Ljósheima en það mál var afgreitt í nefndinni 12. janúar sl. og í sveitarstjórn 25. janúar. Málið var tekið fyrir á fundi byggðarráðs í gær sem samþykkti að vísa erindinu til afgreiðslu menningar- og kynningarnefndar.
Fyrir liggur að hæsta tilboði í rekstur Ljósheima var ekki tekið og eru skiptar skoðanir á afgreiðslu málsins og reið Sigurjón Þórðarson sveitarstjórnarfulltrúi Frjálslyndra á vaðið og lét bóka eftirfarandi:
Við afgreiðslu málsins í sveitarstjórn Skagafjarðar tók ég fram að augljóslega hefði orðið á mistök við afgreiðslu málsins á fyrri stigum og það eina rétta í stöðunni væri að ganga til viðræðna við þá sem skiluðu inn tilboðum í rekstrinum í góðri trú um að góðir stjórnsýsluhættir og jafnræði ríkti við afgreiðslu málsins, en svo reyndist ekki vera. Hér með er skorað á meirihlutann að viðurkenna mistök og ganga strax til viðræðna við Þröst Inga Jónsson og Kolbrúnu Jónsdóttur sem áttu hæsta tilboð í rekstur Ljósheima.
Þá lagði byggðarráð fram svohljóðandi bókun:
Ákvörðun sveitarstjórnar um útleigu Ljósheima liggur fyrir og vísast til afgreiðslu 286. fundar þann 25. janúar 2012.
Svo óskaði Þorsteinn Broddason, Samfylkingu að eftirfarandi yrði bókað:
Það er ljóst að bæta þarf aðferðarfræði sveitarfélagsins Skagafjarðar í útleigu mannvirkja og innkaupum fyrir sveitarfélagið eins og þetta mál ber með sér. Reglur um þetta þurfa að líta dagsins ljós sem allra fyrst til að tryggja góða stjórnsýsluhætti og jafnréttisgrundvöll fyrir alla íbúa sveitarfélagsins til að taka þátt í verkefnum þess. Menningar- og kynningarnefnd hefur nú 6 daga til að skila rökstuðningi og áskil ég mér rétt til að taka þetta mál aftur upp þegar sá rökstuðningur hefur borist.