Óskað verður eftir viðræðum vegna uppsagna áhafnar Örvars
Byggðrráð sveitarfélagsins Skagafarðar hefur óskað eftir viðræðum við forráðamenn Öldunnar stéttarfélags og FISK seafood ehf. til þess að afla upplýsinga um hvaða ástæður liggja að baki fjöldauppsögnum sjómanna á togaranum Örvari Sk-2 og um áhrif boðaðra breytinga á útgerð á launagreiðslur til sjómanna og almenns fiskverkafólks.
Þetta kemur fram í fundargerð 647. fundar byggðarráðs sem var samþykkt á fundi sveitarstjórnar í gær, en tillaga þessa efnis að óska eftir ofangreindum viðræðum var lögð fram af Sigurjóni Þórðarsyni, fulltrúa Frjálslyndra og óháðra, á umræddum byggðarráðsfundi 9. janúar.
Í fundargerð sveitarstjórnar er vísað í afgreiðslu byggðarráðs, sem samþykkti tillöguna og fól sveitarstjóra að hafa samband við viðkomandi. Í næstu fundargerð byggðarráðs, frá 648. fundi þann 16. janúar kemur fram að Þórarinn Sverrisson formaður Öldunnar hafi komið til viðræðna um atvinnumál í héraði.