Óvenjulegt útilistaverk
Árrisull íbúi Hlíðarhverfis á Sauðárkróki veitti athygli óvenjulegu útilistaverki er hann var á gangi í Raftahlíðinni á sunnudagsmorguninn og smellti af því mynd. Listamaðurinn hafði tekið nokkra poka úr nærliggjandi sorptunnu og sett á bíl er stóð í grenndinni.
Verkið fékk þó ekki að standa lengi frameftir degi og ekki hafa borist um það fregnir hver listamaðurinn er.