Óvitar í Bifröst

Leikfélag Sauðárkróks æfir nú af krafti leikritið Óvitar eftir Guðrúnu Helgadóttur. Verkið er ofboðslega skemmtilegt á margan hátt þar sem börn leika fullorðna og öfugt. Við fáum innsýn í hvernig börn líta á okkur fullorðna fólkið og sjáum hluti sem við kannski gerum okkur ekki alltaf grein fyrir. Við fáum að upplifa fallegan og góðan vinskap sem varð frekar óvænt til vegna mikilla erfiðleika. Þetta er fjörug sýning með djúpa meiningu og er svo sannarlega fyrir alla fjölskylduna,“ segir Eysteinn Ívar leikstjóri verksins. Feykir tók tal að Eysteini sem er búin að standa í ströngu, því nú styttist í frumsýningu en hún er áætluð 10. október nk. Miðasalan er farin á fullt og um að gera að næla sér í miða nú þegar er orðið uppselt á fyrstu tvær sýningarnar.