Pétur Björnsson ráðinn þjálfari m.fl. kvenna

Pétur Björnsson hefur verið ráðinn þjálfari m.fl. Tindastóls kvenna í knattspyrnu. Pétur er 46 ára íþróttakennari frá Íþróttakennaraskólanum á Laugarvatni. Hann er einnig lögreglumaður og starfar sem varðstjóri hjá lögreglunni á Sauðárkróki.

 

Samkvæmt heimasíðu Tindastóls hóf Pétur þjálfaraferil sinn á Akranesi með því að þjálfa handbolta og síðan yngri flokka í knattspyrnu.  Hann flutti vestur á firði árið 1995 og þjálfaði þar knattspyrnu og fleiri íþróttagreinar þar til hann flutti til Sauðárkróks 2008.

Pétur hóf yngri flokka þjálfun hjá Tindastóli árið 2010 og varð síðan aðstoðarþjálfari m.fl. kvenna árið 2011.  Hann hefur nú tekið við þjálfarastöðunni af Bjarka Má Árnasyni sem lét af störfum að eigin ósk að loknu síðasta tímabili.

Fleiri fréttir