Pílagrímaganga yfir Heljardalsheiði
Næstkomandi laugardag verður gengin pílagrímaganga yfir Heljardalsheiði, en gangan er hluti af dagskrá hinnar árlegu Hólahátíðar. Boðið verður upp á rútuferð frá Hólum að Atlastöðum kl. 7:00 um morguninn og gengið af stað þaðan um kl. 9:30. Gert er ráð fyrir að koma að Hólum um kl. 18:00. Fararstjóri er sr. Guðrún Eggertsdóttir en skráning er hjá sr. Gylfa Jónssyni á netfangið srgylfi@centrum.is og í síma 895-5550.
Eðli pílagrímaferða er að leita til helgra staða til að endurnæra líkama og sál, þær eru til andlegrar uppbyggingar og reyna á líkamann í leiðinni. Þó gengið sé í hóp gefst hverjum og einum tækifæri til að ganga í þögn, ganga með Guði, leyfa nærveru Guðs og kærleika að umvefja sig í kyrrðinni sem ríkir á fjallinu.
Leiðin yfir Heljardalsheiði er gömul þjóðleið milli Eyjafjarðar og Skagafjarðar. Þar göngum við í spor Guðmundar góða og allra þeirra annarra sem erindi áttu milli þessara byggðarlaga öldum saman.
Sem fyrr segir er boðið upp á rútuferð frá Hólum að Atlastöðum í Svarfaðardal kl. 7:00 um morguninn, en einnig er hægt að koma í hópinn við Atlastaði. Gert er ráð fyrir að ganga af stað frá Atlastöðum um kl 9:30.
Gengið er fram innsta hluta Svarfaðardals, upp brattar brekkur upp í skarð á háheiðinni, Heljardalsheiði. Síðan er farið niður mikinn bratta að Heljará sem þarf að vaða. Þaðan er fremur auðveld ganga niður í Kolbeinsdal og að Kolbeinsdalsá þar sem fólk verður ferjað yfir og keyrt að Grunnskólanum á Hólum. Síðasta spölinn er svo gengið til kirkju þar sem pílagrímar taka þátt í kvöldbænum kl. 18:00. Sundlaugin verður opin fyrir pílagríma eftir gönguna og svo verður kvöldverður á Hólum kl. 20:00.
Nauðsynlegt er að vera í góðum gönguskóm og helst vaðskóm, til að vaða Heljará og jafnvel fleiri ár. Þá þarf að vera vel búinn með nesti, hlýjan fatnað og regnfatnað.
Leiðin er í sjálfu sér ekki mjög erfið, að mestu er gengið á gömlum en illa förnum og talsvert grýttum vegarslóða. En gæta skal að því að takast þarf á við talsverða hækkum, um 500 metra, og langan göngutíma, eða um 7 klukkustundir. Reynt er að ganga á þægilegum hraða og halda hópinn á leiðinni.
Í tilkynningu frá skipuleggjendum er bent að að hver og einn göngumaður ber ábyrgð á sjálfum sér og sínu og ætti að huga að tryggingarmálum og öðru því sem vert er að gæta að. Með í för verður Eiríkur Arnarson björgunarsveitarmaður frá Hofsósi. Þegar komið er að Kolbeinsstaðará verða pílagrímar ferjaðir yfir ána og frá ferjustaðnum er gengið að Fjalli, gangnamannaskála. Þaðan gefst kostur á annað hvort að ganga heim að Hólum eða koma akandi heim að staðnum.
