Piparkökuhúsakeppni í Varmahlíð - Myndband
feykir.is
Skagafjörður
14.12.2013
kl. 15.11
Hin árlega piparkökukeppni heimilisvalsins í Varmahlíðarskóla var haldin föstudaginn 13. des. sl. en hún hófst með sýningu á húsunum um morguninn en síðan var besta verkið valið í leynilegri kosningu. Það voru sextán verk sem kepptu um titilinn þetta árið, þemað var frjálst og var það samdóma álit kjósenda að piparkökuverkin hafi verið afar fjölbreytt og almennt mjög vönduð.
http://www.youtube.com/watch?v=Ec0xlV70Mz8